Dagana 16. – 18. mars 2023 mun Verkiðn halda Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu í Laugardalshöllinni í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina.
Undirbúningur mótsins er í fullum gangi. Í vikunni voru send út upplýsinga -og boðsbréf til ráðamanna sem tengjast málaflokknum, til fagfélaganna og grunn- og framhaldsskóla.
Við hlökkum til að starfa með ykkur og vonumst eftir góðri þátttöku.
Lilja Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri mótsins, Inga Birna Antonsdóttir og Kristjana Guðbrandsdóttir verkefnastjórar.
Frekari upplýsingar á: [email protected]