Tæknidagur fjölskyldunnar

Tæknidagur fjölskyldunnar var fyrst haldinn árið 2013 í samstarfi Verkmenntaskóla Austurlands og Austurbrúar. Dagurinn verður nú haldinn á ný laugardaginn 1. október 2022. Markmiðið með deginum er að vekja áhuga almennings á spennandi viðfangsefnum tækni, verkmennta og vísinda og örva sköpunargleði. Einnig að vekja athygli barna- og ungmenna á fjölbreyttum náms- og starfsmöguleikum.

Sjá nánar á Facebooksíðu verkefnisins.