Forritunarkeppni grunnskólanna

Tækni­skólinn býður nem­endum í 9. og 10. bekk á for­rit­un­ar­nám­skeið fyrir byrj­endur og að taka þátt í For­rit­un­ar­keppni grunn­skól­anna.

Forritunarnámskeið
Laug­ar­daginn 17. febrúar kl. 10:00–16:00

Forritunarkeppni
Laug­ar­daginn 24. febrúar kl. 12:30–17:00

Bæði nám­skeiðið og keppnin fara fram í húsnæði Tækni­skólans á Háteigsvegi.

Tölvu­braut Tækni­skólans stendur fyrir keppn­inni og er markmið hennar að kynna for­ritun fyrir grunn­skóla­nem­endum og skapa vett­vang til að koma saman og leysa skemmtileg verk­efni.

Sjá nánar á kodun.is og á heimasíðu Tækniskólans.