Grunnskóla á Akureyri

Þann 29. febrúar verður nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar og nágrennis boðið að sækja sameiginlega starfskynningu, svokallaða Starfamessu, í Háskólanum á Akureyri. Þetta er í sjötta sinn sem slíkur viðburður er haldinn.

Starfamessa felur í sér að bjóða mismunandi starfsstéttum að setja upp kynningarbása þar sem kynnt verða fyrir nemendum þau störf sem unnin eru innan fyrirtækisins eða stofnanna og hvaða færni eða menntun þarf. Með því gefst nemendum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt og spennandi störf og leggja þannig grunninn að menntun sinni í framtíðinni.

Sjá frétt á vef Háskólans á Akureyri