Ráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf
Hvert á að leita?

Náms- og starfsráðgjöf felst í að hjálpa fólki við að finna áhuga sínum og hæfileikum farveg í námi og starfi.

Náms- og starfsráðgjöf má nálgast hjá Iðunni fræðslusetri, öðrum símenntunarmiðstöðvum um land allt og i gegnum vefsvæðið NæstaSkref.is.

Af hverju ráðgjöf?

Þjónusta náms- og starfsráðgjafa er í boði við langflesta grunn-, framhalds- og háskóla og víða innan atvinnulífsins.

Upplýsingar um fjölbreytt námsframboð, vinnumarkaðinn og alls konar hagnýt atriði sem mikilvægt getur verið að vita.

Í skólum má skipuleggja kynningar og/eða vettvangsferðir á einstaka námsbrautir framhaldsskóla eða  vinnustaði.

Eitthvað sem þvælist fyrir í námi eða starfi? Náms- og starfsráðgjafi gæti aðstoðað við að líta á málin frá öðru sjónarhorni.

“Meginmarkmið náms- og starfsráðgjafar er að efla vitund fólks um hæfileika sína, viðhorf og áhuga þannig að það geti notið sín í námi og starfi.”