Næsta mót
Framhaldsskólakynning og Íslandsmót iðn- og verkgreina
Kynntu þér nám í framhaldsskóla á „Minni framtíð“
Dagana 13.–15. mars 2025 fer fram stóra framhaldsskólakynningin Mín framtíð í Laugardalshöllinni.
Hefur þú áhuga á stærðfræði? Undrum geimsins? Fjármálum? Kvikmyndatækni, listum, bílum eða matreiðslu? Öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á því yfir þrjátíu ólíkir skólar kynna námsframboð sitt.
Gert er ráð fyrir að á bilinu 9.000 til 10.000 grunnskólanemendur mæti á viðburðinn en öllum nemendum 9. og 10. bekkjar er boðið.
Á sama tíma heldur Verkiðn Íslandsmót iðn- og verkgreina, þar sem keppendur reyna á hæfni sína í krefjandi verkefnum. Keppt hefur verið í 20 – 27 greinum hverju sinni og takast keppendur á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.
Þessi spennandi viðburður og framhaldsskólakynningin Mín framtíð er haldinn í samvinnu við Mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina. Þetta er einstakt tækifæri til að skoða námsleiðir framhaldsskólana, kynnast iðngreinum, spjalla við nemendur skólanna og jafnvel prófa handtökin sjálf.
Á fjölskyldudegi, lokadegi mótsins, verður skemmtileg dagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna. Þar er lögð áhersla á að kynna mikilvægi þess að hver og einn eigi kost á því að velja sér nám við hæfi. Sérstök áhersla á Mín framtíð 2025 er á mikilvægi iðn- og verkgreina og svokallaðra Steam-greina; vísindi, tækni, verkfræði, listsköpun og stærðfræði. #mínframtíð
Worldskills
Alþjóðlega Worldskills hreyfingin var stofnuð eftir seinni heimsstyrjöldina og var ætlað að skapa ný tækifæri fyrir ungt fólk í löndum þar sem vinnumarkaður var óstöðugur og einkenndist af skorti á færu vinnuafli.
Í dag eru 85 lönd og landsvæði hluti af hreyfingunni og flest þeirra halda einnig landskeppnir og senda ungt fólk til þátttöku í stærri keppnir í sínum heimshluta á borð við EuroSkills. Ísland hefur átt hlut að WorldSkills frá 2007 fyrir tilstilli Verkiðnar sem heldur Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynninguna Mín framtíð annað hvert ár.
Ísland tekur eins og önnur þátttökulönd þátt í alþjóðasamstarfi og sendir keppendur bæði á EuroSkills og WorldSkills. Keppendur í WorldSkills mega ekki vera eldri en 22 ára á keppnisárinu. Á þessu eru fáeinar undantekningar, til dæmis í flugvirkjun og vélfræði (mechatronics) en þar er aldurstakmarkið bundið við 25 ár.
WorldSkills hefur verið haldið á tveggja ára fresti og oft eru samhliða keppninni haldnar stórar ráðstefnur og málþing sem tengjast iðnnámi og þróun iðn- og verkgreina. World Skills keppnir voru haldnar með reglulegu millibili allt til ársins 2020 þegar Covid-19 heimsfaraldurinn riðlaði skipulaginu.
Næsta WorldSkills mót verður haldið með hefðbundnu sniði árið 2024 í Lyon, Frakklandi. Sjá meira um WorldSkills hér
Euroskills
EuroSkills keppnin er haldin annað hvert ár á móti WorldSkills keppninni.
Keppendur koma víða að frá Evrópulöndunum, eru 25 ára og yngri og geta sveinar jafnt sem nemar tekið þátt.
Keppnin í Evrópu er mikilvæg fyrir framþróun í iðnaði og iðn -og verknámi. Hvert þátttökuland keppist um að þróa færni sína í hverri grein. Hún stuðlar einnig að starfsþróun þeirra iðn- og verkgreinakennara sem taka þátt í þjálfun ungmenna sem keppa.
Keppnin er haldin af WorldSkills Europe sem er hluti af alþjóðlegu WorldSkills hreyfingunni og hefur það að markmiði að kynna iðn- og verknám og möguleika þess. Samtökin vinna markvisst með stjórnvöldum og iðnaði til að undirbúa samfélagið undir störf framtíðarinnar.
Ísland hefur tekið þátt í keppninni frá árinu 2007 fyrir tilstilli Verkiðnar sem eru samtök stofnuð um keppnir í iðn- og verkgreinum á Íslandi. Meginstarfsemi Verkiðnar sem systursamtök okkar kalla SkillsIceland er að:
- auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar
- bæta ímynd iðn- og verkgreina
- halda Íslandsmót iðn- og verkgreina annað hvert ár
- vekja athygli á tækifærum sem felast í námi og störfum í þessum greinum
- vera samstarfsaðili við EuroSkills og WorldSkills